Fjallageitin Sammý

Ég er orðin fjallageit og ekkert annað. Þeytist hér um fjöll og firnindi alveg að springa en læt mig hafa það því þann 1. maí ÆTLA ég að ganga upp á Hvannadalshnjúkinn og ekkert annað.

Búin að vera í stöðugri æfingu með göngugörpum bankans en ég er aftur á móti hálfgerður garmur eða bara harmur......  En þetta hefst vonandi enda ekki margir dagar eftir í þjálfun.

Það koma myndir síðar.

kv. og GLEÐILEGT SUMAR


Gleðileg jól og farsælt nýtt ár

diddl_aka_pim_vinker  Óskum ykkur öllum velfarnaðar á komandi ári.

 


Skjálftinn 2008 var lán í óláni

Það er með ólíkindum hvað uppbyggingin hefur gengið vel. Við erum svo í skýjunum að við svífum yfir flísarnar og parketið. Erum eiginlega bara í spennufalli ( kannski þess vegna sem ég ligg í bælinu með kvef og hita )  Við erum komin aftur á gamla góða staðinn. Flutt úr teppalandinu - hjúkvitt - Náðum þessu fyrir jól. Það er skondið að engin trúði því ( ekki einu sinni yfirsmiðurinn ) að okkur mundi takast þetta á rétt rúmum 3 mánuðum frá því að gera húsið minna en fokhelt og í það að klára að fullu fyrir jólin 2008. Við trúðum því samt að þetta tækist fyrir þann tíma enda lítill áhugi á að halda jólin í teppalandi en gerðum samt  pínkulítið ráð fyrir því. Málið er að við unnum svo mikið í þessu sjálf sem betur fer því annars værum við enn að.  Málið er að við erum komin með algjörlega endurnýjað hús og það er lánið í óláninu.

 Ég var nú bara að gera mér grein fyrir því að það eru bara nokkrir dagar til jóla. Nú verð ég virkilega spennt.

Ef þú færð ekki jólakort frá okkur þá er það ósköp eðlilegt. Við ætlum að gera allt annað en eyða kvöldum fram að jólum í að skrifa á kort. Við ætlum að slaka á ásamt börnunum okkar því  við eigum það svo sannarlega skilið.

setti inn nýjar myndir

GLEÐILEG JÓL

 


Erum flutt

Kæru vinir og vandamenn.

Við fluttum inn á laugardaginn var. Erum í augnablikinu ekki með nettengingu. Skrifa meira um leið og Síminn er búin að færa línuna á milli Teppalands og litla krúttlega hússins míns .

kv. í bili


Ég er svo bjartsýn

Vitið þið að ég er svo bjartsýn að trúa því að við komumst inn fyrir jól. ( hey trúin flytur fjöll ). Ég held meira að segja að við náum því um næstu helgi að flytja inn í litla kósý kotið mitt ( og Kidda ) Við ( hann ) vinnum eins og skepnur til að draumurinn rætist að smokra sér inn fyrir jólin. Það eins og þetta séu síðustu jólin á jarðkringlunni því ég er fallin í þá gryfju að þetta verði að nást fyrir þessi jól. Enda er ég ekkert rosa spennt að eyða jólum í teppalandi. En málið er að það er svo MIKIÐ af SMOTTERÍI sem þarf að gera. En þar sem ég er með Ollugenin þá örvænti ég ekki. Maður brettir bara upp ermar, spýtur í lófa og hefst handa. Nú er verið að fúa stóru gólfflísarnar ( ef þið viljið vita um hvað ég er að tala þá skoðið þið bara myndirnar ) og eldhúsinnréttingin er alveg að komast upp. Meistari Jón er einn sá allra vandvirkasti maður sem ég þekki og skeika ekki um einn millieter,  karlinn.  Við Rebekka byrjuðum að setja saman fataskápana en þeir eru BARA 8 talsins og við náðum að setja sama 2 í kvöld.  Meistari Jón fær svo það verkefni að stilla þá rétta og festa VEL við vegginn. Hann sendi okkur í bæinn í gær að sækja 30 stk af veggfestingum hjá Ikea og þegar við báðum um þær þá varð afgreiðsludrengurinn frekar hvumsa og sagði ; ha, fylgdu ekki festingar? jú jú : sagði Kiddi minn, en mig vantar 30 í viðbót því ég bý á skjálftasvæði og þarf að festa allt EXTRA vel við veggi. Já ég skil, heyrðu ég á akkúrat þennan fjölda í lausu og get akkúrat selt þér það: sagði þessi indælis drengur. Og kemur ekki til með að vera með móral ef hristist aftur í litla kotinu mínu. SKOTHELT


Nýjar myndir komnar inn

Skoðið nú nýjustu myndirnar -

Allt á fullu

Komnar inn fullt af nýjum myndum inn í möppu sem heitir allt á fullu

Fyrsti Sunnudagur í Aðventu

Þeir mættu nú ekki alveg á slaginu 9 í morgun bræðurnir Mirek og Jarsek heldur komu þeir kl 1 því þeir voru á djamminu í gær og voru frekar þunnir. En það gerði nú lítið til því þeir hófust handa við að mæla og pæla. Mirek ( Míló eins og strákarnir í...

Allt á fljúgandi ferð og við alveg að komast inn fyrir joohóóól

Ég hef bara ekki haft tíma til að skrifa því allur minn tími hefur farið í litla kotið mitt. Múrarinn hefur tekið dótið sitt. Elli og Gylfi málarar hafa verið alla vikuna að setja gifsborða í samskeytin á gifsplötunum og laga samskeyti hér og þar fyrir...

Stutt í innflutningspartýið

Jæja elskurnar mínar, þá hafa þeir yfirgefið samkvæmið, smiðirnir - búnir að koma sínu dóti út úr húsinu og við hafa tekið málararnir til að sparsla veggi og loft. Þeir byrjuðu í kvöld og verða að vinna alla helgina og langt fram á þriðjudag ( ég er rosa...

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband